Bókasafn

Hlutverk skólasafns er:

  • Að vera virkur þáttur í fræðslu- og uppeldisstarfi skólans.
  • Að kenna nemendum að nota bækur og bókasöfn sér til gagns og æfa þá í sjálfstæðri heimildaöflun í samvinnu við umsjónarkennara.
  • Að gefa nemendum kost á gagnlegu og þroskandi lesefni til tómstundalestrar.

Skólasafnið á að vera í senn, útlánsstofnun, vinnustaður nemenda og kennara en einnig menningarmiðstöð skólans.

Safnið er opið nemendum sem vinna að ákveðnum verkefnum í skólanum og eru nemendur hvattir til að nota aðstöðuna til heimanáms. Þá geta nemendur annað hvort nýtt sér opnunartíma eða kennari farið með nemendum sínum á safnið.

10. bekkur fær fræðslu um gagnasöfnin Leitir og Gegni hjá forstöðumanni skólasafns.

Útlán:

Í vetur verður fastur opnunartími á safninu frá kl. 08:10 – 17:00 mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga

og frá kl. 08:10 – 19:00 á fimmtudögum, lokað á föstudögum.

Þá gefst nemendum tækifæri á að koma á safnið og skoða bækur og önnur gögn og þeir geta tekið með sér heim áhugaverðar bækur, eða sest niður og litið í bækur og blöð á safninu.

Nemendur fá frí bókasafnskort á almenningssafni.

Safnefni grunnskólans:

Safnkostur nær til prentaðs efnis og nýsigagna. Á safninu eiga að vera bækur, hljóðbækur, tímarit, smárit, geisladiskar, mynddiskar, myndir og kennsluforrit. Bókakostur safnsins er skráður í miðlægan gagnagrunn; Gegni.

Forstöðumaður skólasafnsins er Guðrún Rúnarsdóttir.