Aðalfundur nemendafélags GR

Frá aðalfundi nemendafélags GR
Frá aðalfundi nemendafélags GR

Nemendafélag Grunnskóla Reyðarfjarðar hélt aðalfund sinn á sal í dag. Viðstaddir fundinn voru nemendur 7. - 10. bekkjar.

Auður Rós formaður setti fundinn og kynnti nemendaráð en í því sitja fulltrúar nemenda í 7. - 10. bekk. Allir fulltrúar nemendaráðs tóku til máls og farið var yfir mikilvægi félagsstarfs í skólanum, reglur félagsins og svo var vetrarstarfið kynnt. Margt skemmtilegt er framundan. Hér má sjá dagskrá nemendaráðs í vetur og hér eru fleiri myndir frá fundinum.