Árshátíð 1. til 6. bekkjar var haldin með miklum glæsibrag. Nemendur sýndu leikritið um Línu langsokk fyrir fullum sal, en áhorfendur voru um 250 manns. Karitas Harpa sá um leikstjórn og hljómsveit frá tónlistarskólanum lék með af mikilli snilld. Sérstakar þakkir til þeirra fyrir frábært og óeigingjarnt framlag.
Nemendur stóðu sig með prýði, sérstaklega þar sem sýningin var sett upp á aðeins þremur dögum.
Nemendur á unglingastigi sáu um alla sviðsmynd.
Hér má sjá myndir af generalprufunni og baksviðs af leikurum
|
Heiðarvegur 14a 730 Reyðarfjörður Sími á skrifstofu: 470 9200 Netfang: rey@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |