Árshátíð 7. til 10. bekkjar fór fram þann 8. apríl síðastliðinn. Upphaflega átti sýningin að fara fram fyrir páska en var frestað vegna veðurs. Nemendur sýndu leikritið um Línu langsokk og stóðu sig frábærlega. Thelma Rún sá um leikstjórn og hljómsveit frá tónlistarskólanum lék undir með sinni alkunnu snilld. Kærar þakkir til þeirra fyrir frábært starf.
Hér má sjá myndir af generalprufunni og af sýningunni sjálfri.
|
Heiðarvegur 14a 730 Reyðarfjörður Sími á skrifstofu: 470 9200 Netfang: rey@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |