Baráttudagur gegn einelti

Baráttudagur gegn einelti bar upp á laugardegi en við í Grunnskóla Reyðarfjarðar héldum daginn hátíðlegan mánudaginn 10. nóvember.

Við vildum gera eitthvað táknrænt í tilefni dagsins og blésum við því til Fjölgreindarleika, líkt og oft áður á þessum degi.

Á fjölgreindarleikum skiptum við öllum nemendum skólans í 16 hópa, þvert á árganga. Elstu nemendur bera ábyrgð á þeim yngstu en allir í hópnum vinna saman að því að leysa fjölmargar þrautir víðsvegar um skólann þar sem áhersla er lögð á að enginn getur allt en allir geta eitthvað og sameinuð náum við lengra. 

Hér má sjá myndir frá deginum