Dagur íslenskrar tungu

Nemendur 7. bekkjar flytja atriði á Degi íslenskrar tungu.
Nemendur 7. bekkjar flytja atriði á Degi íslenskrar tungu.

Við héldum upp á Dag íslenskrar tungu í dag með samveru á sal.

Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð. Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert.

Þessi dagur markar einnig upphaf undirbúnings fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem 7. bekkur tekur þátt í ár hvert og Litlu upplestrarkeppnina sem haldin er í 4. bekk.  Það voru nemendur þessarra bekkja sem buðu skólasystkinum sínum upp á samveru á sal í dag þar sem þau fluttu fjölbreytta texta í anda dagsins.

Hér má sjá nemendur 4. bekkjar lesa ljóð: