Við héldum upp á Dag íslenskrar tungu í dag með samveru á sal.
Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð. Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert.
Þessi dagur markar einnig upphaf undirbúnings fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem 7. bekkur tekur þátt í ár hvert. Nemendur 7. bekkjar buðu skólasystkinum sínum upp á samveru á sal í dag þar sem þau fluttu fjölbreytta texta í anda dagsins.
| 
 Heiðarvegur 14a 730 Reyðarfjörður Sími á skrifstofu: 470 9200 Netfang: rey@skolar.fjardabyggd.is  | 
 Skrifstofa skólans er opin frá   |