Velkominn vertu þorri minn

Í dag hlupu drengirnir okkar inn þorrann í dásemdar veðri. Nú vonumst við til þess að þorri fari um okkur blíðum höndum.

Fyrsti dagur þorra er jafnframt bóndadagur.  Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir:„Þess vegna var það skylda bænda 'að fagna þorra' eða 'bjóða honum í garð' með því að þeir áttu að fara fyrstir á fætur allra manna á bænum þann morgun sem þorri gekk í garð. Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa.“

Í þá daga lögðu menn ýmislegt á sig til að blíðka veðurguðina eða hafa áhrif á að veðrið færi blíðum höndum um fé og menn.  Enn í dag er það ósk okkar að veðrið sé gott og því gerðu drengirnir okkar þetta samviskusamlega.  Eftir hlaupið hresstu þeir sér á djúsglasi.