Nemendur 10. bekkjar Grunnskóla Reyðarfjarðar kvöddu með stæl í troðfullum hátíðarsal skólans miðvikudaginn 4. júní. Þar kynntu 27 nemendur lokaverkefnin sín, sem voru lokahnykkurinn á þemanámi vetrarins, samþættu námi unglingastigsins. Það var yndislegt að sjá nemendur blómstra á sviðinu, segja frá og sýna foreldrum, vinum og ættingjum fjölbreytt verkefnin. Það var einnig uppörvandi og hvetjandi að ræða við áheyrendur eftir sýninguna sem áttu vart orð yfir fjölbreytileika verkefna og sjálfsöryggi og krafti þessara frábæru ungmenna. Ein amman komst þannig að orði ” Af hverju eru stöðugt fréttir af einsleitu skólastarfi, veit þetta fólk ekki af allri þessari fjölbreytni og allri þessari nýsköpun. Fólk sem tjáir sig um skólamál ætti að koma inní skólann og sjá hvað er að gerast í raun og veru”.
Þemanám, þar sem verkefni eru valin af nemendum út frá áhugasviði þeirra og námsmarkmið margra námsgreina eru samþætt, hefur verið hluti af starfsemi skólans í áraraðir. Námið fer fram samhliða námi í öðrum námsgreinum og er sérsniðið til að efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda, beisla sköpunarkraft þeirra og temja þeim ábyrgð á að vinna verkefni frá hugmynd að lokaafurð. Þemanámið hefur einnig áhrif á nám í öðrum námsgreinum og ýtir þar undir fjölbreytt vinnubrögð og skapandi vinnu í takt við þann nauðsynlega grunn sem nemendur fá í hverri námsgrein.
Innilega til hamingju elsku nemendur með útskriftina, frábærar kynningar og fyrst og síðast fyrir samstarfið á liðnum árum. Einkunnarorð skólans ”Hugrökku hjarta er ekkert ómögulegt” koma upp í hugann á kveðjustund og við leyfum setningu úr kveðjuræðu Ástu skólastjóra að vera lokastefið í fréttinni.
”Kæru útskriftarnemendur – þið eruð sannarlega gull af manni og já það má ekki gleyma kraftinum, þið vitið alveg hvað þið viljið en það er gott, því þið eruð líka tilbúin til þess að hlusta á aðra. Með ykkar einlægni, vinnusemi og góða hjarta hafið þið haft jákvæð áhrif á skólasamfélag okkar. Þið getið verið stolt af því sem þið hafið áorkað hingað til. Á Viskubrunni fann ég þessi orð sem mér finnst eiga svo vel við ykkur kæru nemendur:
Það sem við gerum í dag, byggir heiminn á morgun. Látum því góðmennsku og kraft vera okkar leiðarljós.”
Hér má sjá nokkur dæmi af lokaverkefnum nemenda
Heiðarvegur 14a 730 Reyðarfjörður Sími á skrifstofu: 470 9200 Netfang: rey@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |