Geðlestin með MC Gauta

Geðlestin er geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sem byggir á þeirri staðreynd að við búum öll við geð rétt eins og við erum með hjarta. Á lífsleiðinni er mjög líklegt að við lendum í mótvind og þurfum jafnvel að leita okkur aðstoðar. Öflug geðrækt frá unga aldri út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur. Geðlestin er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og er styrkt af félags- og heilbrigðisráðuneytunum.

Geðlestinni er ætlað að vekja athygli á mikilvægi geðheilsu og verndandi þáttum hennar. Hver heimsókn fer þannig fram að fyrst er sýnt leikið myndband, þá segir ungur einstaklingur frá sinni persónulegu reynslu af geðrænum áskorunum, eftir það umræður og í lokin er stutt tónlistaratriði þar sem tónlistarmaðurinn MC Gauti steig á svið og skemmti nemendum.

Markmiðið með Geðlestinni er að ræða við ungt fólk um geðheilsu og hvernig best sé að rækta hana og vernda. Lífið býður upp á allskonar áskoranir og stundum þurfum við að leita okkur aðstoðar við verkefni lífsins. Það er eðlilegasti hlutur í heimi að biðja um hjálp. Nemendur eru hvattir til þess að tjá tilfinningar sínar, spyrja spurninga og ræða við foreldra/aðstandendur eða kennara um það sem gengur á í amstri dagsins.

Það er mikilvægt að læra að stundum er lífið leiðinlegt og erfitt og það þurfi ekki alltaf að þýða eitthvað alvarlegt eða slæmt. Mótvindur verður skyndilega meðvindur og engin brekka er endalaus.

Það á að vera jafn eðlilegt að huga að geðheilsu sinni eins og líkamlegri heilsu. Það er hægt að gera með því að koma sér upp heilbrigðum venjum, líkt og að iðka þakklæti, eiga sér áhugamál, hreyfa sig, borða hollt, fá nægan svefn, treysta, eiga góða vini, rækta með sér seiglu og þrautseigju, vera umburðarlynd(ur), hjálpa öðrum, sýna tillitssemi, tjá sig svo fátt eitt sé nefnt. 

Athugasemd til foreldra og kennara

Fræðsla eins og þessi þar sem einstaklingur segir frá lífsreynslu sinni getur kallað fram viðbrögð hjá þeim sem hlusta og því er mikilvægt að forráðamenn séu meðvitaðir og ræði við börn sín að fræðslunni lokinni.  Það er einnig mikilvægt að kennarar og aðrir starfsmenn skóla fylgist með viðbrögðum nemenda í kjölfarið.