Göngum í skólann

Í gær hófst formlega verkefnið Göngum í skólann og stendur það til 4. október. Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskakutum eða á annan virkan hátt til og frá skóla. Íslensk börn og fullorðnir sem taka þátt í verkefninu slást þar með í för með mörgum öðrum þjóðum heims,.

Markmið verkefnisins eru meðal annars að:

- Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.

- Stuðla að heilbrigðum lífsstíll fyrir alla fjölskylduna, en hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.

- Minnka umferð við skóla og draga þar með úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum ásamt betra og hreinna lofti og öruggari og friðsælli götum og hverfi.
- Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál. Beina sjónum að því hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Auka samfélagsvitund.
- Auka vitund um reglur þær er lúta að öryggi á göngu og hjóli.
 
Verkefninu lýkur hjá okkur 4. október en síðustu vikuna fer fram keppni milli bekkja þar sem keppt er um það hvaða bekkur labbar oftast til og frá skóla.