Hafið í kringum Ísland - Verkefni í 1. bekk

Nemendur í 1. bekk hafa verið að vinna skemmtilegt verkefni um hafið í kringum Ísland og það sem leynist í Atlantshafinu. Í síðustu viku fóru þau í fjöruferð þar sem þau skoðuðu lífið í fjörunni og fundu ýmislegt spennandi úr náttúrunni.

Eftir ferðina unnu nemendur áfram með það sem þau lærðu og eru að búa til falleg verkefni úr eggjabökkum. Þar settu þau allskonar hluti sem tengjast hafinu í kringum Ísland og sýndu með skapandi hætti það sem þau höfðu séð og lært.

Hér má sjá myndir af krökkunum vinna verkefnin