Jólahúfudagur og piparkökur málaðar

Í morgun hittust allir á sal á viðburði sem við höfum ekki náð að halda í tvö ár, vegna sóttvarnaraðgerða. Í dag gátum við komið öll saman og málað piparkökur.

Við byrjuðum á því að syngja saman jólalög sem nemendur í 1. bekk höfðu valið en í framhaldinu dreifðu fulltrúar nemendaráðs piparkökum og glassúr til allra nemenda í salnum og máluðum við af miklum móð undir dynjandi jólatónlist. 

Hér má sjá myndir frá samkomunni.