Menningarmót

Óskalampi Aladíns
Óskalampi Aladíns

Í nýliðinni viku unnu nemendur að fjölbreyttum verkefnum tengdum menningu þeirra. Áherslan var lögð á menningu hvers og eins, gildi, áherslur, væntingar og áhugamál. Talin voru saman þau tungumál sem nemendur skólans tala og sjónum beint að þeim fjársjóð sem felst í öllum þessum tungumálum. Færum við saman í ferðalag á töfrateppi gætum við átt viðkomu í mörgum löndum og bjargað okkur því í Grunnskóla Reyðarfjarðar eru töluð 12 tungumál. 

Seinni partinn á fimmtudag buðum við svo forráðamönnum í heimsókn. Byrjað var á sal þar sem gestir voru boðnir velkomnir. Síðan ávarpaði Kristín Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar, samkomuna en hún er höfundur verkefnisins (sjá á menningarmot.is) Kristín fékk nemendur í 1. - 4. bekk til liðs við sig að opna menningarmótið sem þau gerðu með dans og söng þar sem þau buðu gesti velkomna á nokkrum tungumálum. Síðan rak hvert skemmtiatriðið annað. Söngur á þremur tungumálum, píanóleikur, karate og ljóðalestur. Að lokum fengum við tölfræðilegar upplýsingar um fjölda tungumála í skólanum. Eftir samveru á sal var gestum boðið að ganga um skólann og heimsækja nemendur og fræðast um menningu hvers og eins. 

Þessi samvera var ánægjulegur endir á frábærri viku. Við komumst enn og aftur að því að við erum einstök, hvert og eitt okkar, en eigum um leið svo margt sameiginlegt, hvaðan sem við komum. Uppruni okkar getur verið íslenskur, pólskur, íraskur, bosnískur, filippseyskur, kanadískur, þýskur, norskur, bandarískur, portúgalskur og spænskur en öll erum við Reyðfirðingar því við kjósum að búa hér, Íslendingar og ekki má gleyma jarðarbúar. Og margt af því sem fær okkur til að líða vel eigum við sameiginlegt með einhverjum öðrum. Við erum þakklát fyrir þennan mikla fjársjóð sem býr í samfélaginu okkar í Grunnskóla Reyðarfjarðar.