Samkomubann í gildi til 4. maí

Við viljum við minna á að samkomubann er enn í gildi og ítrekum nauðsyn þess að allir fari eftir fyrirmælum almannavarna í einu og öllu.

Viljum við sérstaklega minna á eftirfarandi:
.    Það er mikilvægt að forráðamenn barna dragi úr fjölda einstaklinga í tengslaneti barna sinna utan skólatíma.
.    Skólafélagar sem ekki eru í sama hópi í skólastarfinu eiga ekki að vera saman utan skóla.
.    Við erum ekki að heimsækja félaga og vini frá öðrum bæjum í nágrenni okkar.
.    Nemendur innan sama nemendahóps geta verið að leika saman en leikirnir mega ekki fela í sér beina snertingu, notkun á sameiginlegum leikföngum eða búnaði sem snertur er með berum höndum.

Að lokum viljum við taka það fram að mjög vel gengur hér í skólanum að fylgja fyrirmælum almannavarna um aðskilnað hópa og fjarlægðarmörk og erum við þakklát fyrir það.
Höfum það hugfast að samkomubann er í gildi til 4. maí og er mikilvægt að við sofnum ekki á verðinum, þetta er að hafast hjá okkur.

"HLÝÐUM VÍÐI"