Skíðadagur

Fimmtudaginn 12. mars fór allur skólinn í Oddskarð við ágætar aðstæður. Veðrið var gott framan að en byrjaði svo að vinda seinni hluta ferðarinnar.

Margir nutu þess að renna sér á skíðum og þar voru fjölmargir að renna sér í fyrsta skipti undir öryggri stjórn starfsmanna skólans. Þeir vönu hentust um brekkurnar af miklu öryggi og höfðu varla tíma til að taka sér hlé til að nærast en þó er nestið oft sá þáttur sem vegur hæst í svona ferðalögum.

Nokkrir renndu sér á sleðum  og svo var hópur sem skelltu sér í gönguferð. 

 

 Allir komu svo þreyttir en glaðir heim eftir vel heppnaðan dag.

 

Myndir má sjá hér