Slæm veðurspá 2. - 3. desember

Á vef Fjarðabyggðar má lesa frétt vegna veðurspár Veðurstofa Íslands sem gerir ráð fyrir versnandi veðri á Austurlandi í dag og á morgun og hefur Veðurstofa Íslands gefið út gula viðvörun fyrir Austfirði vegna þessa. Hvessa mun til muna þegar líður á daginn, og gert er ráð fyrir norðan 18 – 25 m/s í kvöld og fram eftir degi á morgun.

Vegna þessarar veðurspár er vert að minna á reglur skólans um veður og færð:

Ef veður er mjög slæmt er gott að hlusta á tilkynningar í útvarpi,

Ef skólahaldi er aflýst eru jafnframt send smáskilaboð til allra foreldra.

Foreldrar yngri barna eru minntir á að meta veðurútlit hverju sinni.  Veður getur verið slæmt þó ekki sé talin þörf á að leggja niður kennslu og þá er rétt að hafa yngri börnin heima ef ekki er hægt að fylgja þeim bæði í og úr skóla. Þetta verða foreldrar að meta sjálfir.