Smitrakning

Eins og kom fram í pósti sem við sendum frá okkur í gærkvöldi hafa nokkur smit verið staðfest í skólaumhverfi okkar. Í dag er nemendum og starfsfólki leikskólans boðið upp á sýnitöku kl. 12 á heilsugælsunni á Reyðarfirði. Við viljum beina því til ykkar að ef einhver, nemandi eða annar fjölskyldumeðlimur er með einkenni eða hefur áhyggjur af hugsanlegu smiti þá stendur okkur til boða að koma líka í sýnitökuna kl. 12. Þeir sem það gera þurfa bara að bóka sér einkennasýnitöku á heilsuvera.is og mæta með strikamerkið kl. 12.