Snjórinn er skemmtilegur en kaldur

Allur þessi dásemdar snjór er uppspretta endalausra ævintýra og gleðistunda þessa dagana.

Til þess að njóta þess að leika í snjónum er afar mikilvægt að vera vel búinn, í góðum hlífðarfatnaði, í góðum kuldaskóm og með húfu. Vettlingarnir spila stórt hlutverk þegar verið er að grafa sig inn í snjóinn og búa til hús og göng á milli húsanna. 

Framundan eru kaldir vetrardagar með meiri snjó svo nú er afar mikilvægt að búa sig vel.