Stjórnmálaverkefni

Nemendur í 9. og 10. bekk hafa undanfarnar vikur unnið að stjórnmálaverkefni í samþættu námi í íslensku, náttúrufræði og samfélagsfræði.

Markmiðið með verkefninu var að  nemendur myndu:

  • læra um lýðræði, mismunandi útfærslur á því og hvernig það virkar á Íslandi. 

  • þjálfa og efla sjálfsvitund sína og ábyrgð sem borgari og neytandi. 

  • geta rökrætt stöðu sína sem þátttakandi í samfélaginu, réttindi og skyldur.

Nemendum var skipt upp í 4-5 manna hópa sem hver og einn stofnuðu stjórnmálaflokk, sömdu stefnuskrá, gerðu bæklinga og kynningarplaköt og gerðu slagorð flokksins. Að lokum var haldinn framboðsfundur og síðan gengið til kosninga þar sem nemendur 7. og 8. bekkjar voru á kjörskrá ásamt kennurum og  bæjarfulltrúum. Í lokin var haldin kosningavaka þar sem úrslit voru tilkynnt. Að þessu sinni voru það LA Fálkar sem sigruðu. Aðrir flokkar voru Almenningsflokkurinn, Græna framtíðin, Flokkur unga fólksins, Framfærisflokkurinn og Vaxtarflokkurinn. Stefnumálin voru fjölbreytt og frumleg og má þar nefna vernd náttúruauðlinda, framleiðslu rafmagns með bylgjutækni, eflingu félagsmiðstöðva, bættar almenningssamgöngur, símabann og hefja skóladag seinna að morgninum. Þá lögðu allir flokkar  áherslu á bætta andlega líðan.

Við erum afar stolt af þessum hugmyndaríku og lausnamiðuðu nemendum okkar, framtíðin er svo sannarlega björt.

Myndir af bæklingum og kynnungum má sjá hér