Stóra upplestrarkeppnin - Undankeppni

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram hjá 7. bekk  þar sem allir nemendur tóku þátt. Þrír utanaðkomandi dómarar mátu frammistöðu nemenda.

Fulltrúar skólans í aðalkeppninni sem verður haldin á Eskifirði 14. apríl eru Haukur Leó Hannesson, Sigurbergur Nóel Hauksson og Sæbjört Vala Ægisdóttir.

Varamenn eru Angela Ósk Ómarsdóttir, Petur Marinó S. Mittelstein og Sóley Nikíta Stefánsdóttir.

Við óskum þessum glæsilegu fulltrúum okkar innilega til hamingju með árangurinn. . Við bíðum spennt og hlökkum mikið til að fylgjast með þeim halda merki skólans á lofti í aðalkeppninni. Áfram 7. bekkur!

 

Fleiri myndir má sjá hér