Styrkleikarnir

Miðvikudaginn 9. september tekur skólinn þátt í Styrkleikunum, samstöðudegi á vegum Krabbameinsfélagsins þar sem nemendur og starfsfólk sameinast til að sýna stuðning og samkennd með öllum þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Dagurinn hefst kl. 8:10 í íþróttahúsinu, þar sem verkefnið verður kynnt og allir ganga fyrsta hringinn saman. Eftir það verður boðhlaupskeflið á hreyfingu til kl. 14:00 og nemendur geta gengið eða skokkað hringi yfir daginn í samráði við kennara.

Styrkleikarnir eru ekki keppni – heldur tákn um samstöðu. Það skiptir ekki máli hversu hratt eða langt er farið, heldur að taka þátt. Hver hringur táknar stuðning og hvert skref segir: „Við stöndum með þér.“

Þema Styrkleikanna er fjólublátt  og hvetjum við nemendur og starfsfólk til að mæta í einhverju fjólubláu þennan dag 💜