9. september tókum við þátt í Styrkleikunum og var virkilega skemmtileg og góð stemning hjá okkur. Frá kl. 8:10 til 14:00 gátu allir nemendur og starfsfólk skólans komið í íþróttasalinn og gengið eða hlaupið hringi til að sýna stuðning og samstöðu með þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra.
Börnin tóku þátt af miklum áhuga og gleði og voru ótrúlega dugleg að hvetja hvort annað áfram. Saman náðum við frábærum árangri - við fórum alls 6.800 hringi, sem gera um 748 km!
Í lok dags fengu nemendur armbönd frá Krabbameinsfélaginu sem var skemmtileg leið til að ljúka deginum.
Það skiptir miklu máli að kenna nemendum mikilvægi samstöðu, stuðnings og þess að leggja sitt af mörkum fyrir gott málefni. Við erum mjög stolt af öllum sem tóku þátt og þökkum fyrir frábæran dag saman.
Myndir má sjá hér
|
Heiðarvegur 14a 730 Reyðarfjörður Sími á skrifstofu: 470 9200 Netfang: rey@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |