Þemavika

Á dögunum var haldin skemmtileg og fjölbreytt þemavika í skólanum þar sem geimurinn var í aðalhlutverki!

Nemendur unnu að fjölbreyttum og skapandi verkefnum sem tengdust geimnum á einn eða annan hátt. Hugmyndaflugið fékk að njóta sín og afraksturinn var bæði skemmtilegur og glæsilegur.

Samhliða þemavikunni var einnig farið í lestrarátak þar sem nemendur voru hvattir til að lesa bæði heima og í yndislestri í skólanum. Fyrir lesturinn fengu þeir að hengja upp stjörnur og geimflaugar sem smám saman fylltu skólann og mynduðu skemmtilega hvatningu til frekari lesturs. ⭐📚

Þemavikunni lauk með sýningu þar sem foreldrum var boðið að koma í heimsókn og skoða afrakstur vinnu nemenda.

Við þökkum öllum nemendum fyrir frábæra þátttöku og foreldrum fyrir komuna! 🚀

 

Myndir af vikunni má sjá hér