Þorrablót

Nemendur Grunnskóla Reyðarfjarðar héldu sitt þorrablót í 16. janúar. Þrátt fyrir að Þorri blessaður væri ekki formlega mættur tókum við forskot á sæluna og fögnuðum komu hans með stæl.

Nemendur 1. - 4. bekkjar halda sitt þorrablót á skólatíma. Þar þjóna kennarar og annað starfsfólk skólans til borðs og stíga svo á stokk með alls kyns sprell og læti nemendum til ómældrar gleði. Eftir borðhald var stiginn dans. 

 

Hér má myndir