Útivistardagur

Þann 2. september fór fram útivistardagur. Nemendur eyddu deginum úti við hreyfingu, leiki og gönguferðir.

Yngstu nemendurnir héldu sig nær heimabyggð og fóru meðal annars að Skúlakletti og í skóginn í Hálsi, þar sem farið var í ýmsa leiki. Aðrir árgangar spreyttu sig á lengri gönguleiðum um nágrennið, meðal annars Stífluhring, Eyrarhjalla og göngu að Grásteini.

Nemendur í 6. bekk brugðu sér á Stöðvarfjörð og heimsóttu Steinasafn Petru, en elstu nemendur skólans gátu valið á milli göngu á Grænafell eða út að Sómastöðum.

Dagurinn einkenndist af útiveru, hreyfingu og góðri samveru. 

 

Myndir má sjá hér