Vordagur

Á föstudaginn var haldinn útivistardagur hjá nemendum skólans og nýttu allir tækifærið til að hreyfa sig, njóta náttúrunnar og eiga saman skemmtilega stund utandyra.

Nemendur í 1. og 2. bekk fóru í hjólabraut þar sem þeir æfðu sig á hjólunum og skemmtu sér vel. Nemendur í 3. bekk hjóluðu að Njörvadalsá, kíktu á geiturnar og gáfu þeim brauð. Í 4. bekk var hjólað út á haga og síðan farið í fjöruferð hjá skógræktinni.

Nemendur í 5. og 6. bekk skiptust í hópa. Sumir fóru í gönguferð í átt að Grænafelli en aðrir fóru í hjólatúr sömu leið og hjóluðu síðan línuveginn fyrir ofan bæinn.

Í 7. og 8. bekk fóru sumir í göngutúr að Njörvadalsá en aðrir lögðu af stað í langan hjólatúr suður fyrir fjörð.

Dagurinn heppnaðist einstaklega vel þrátt fyrir veður sem hefði mátt vera betra.

Þegar heim var komið voru allir glaðir, sælir og þreyttir eftir daginn. Útivistardagurinn minnti okkur enn og aftur á mikilvægi hreyfingar, samveru og þess að njóta þeirrar fallegu náttúru sem umlykur okkur.

 

Myndir af deginum má sjá hér